Vefur samgönguáætlunar

Vefnum er ætlað að veita upplýsingar og fróðleik um hvað felst í næstu tólf ára samgönguáætlun og annað sem tengist þeirri áætlanagerð.

Hér er að finna lög um samgönguáætlun og fyrri samgönguáætlanir sem samþykktar hafa verið en þær ná til tólf ára og fjögurra ára og eru endurskoðaðar reglulega. Bent er á helstu atriði áætlunarinnar, greinargerð og annað sem snertir hana. Þá eru birtar hér ýmsar skýrslur sem unnar hafa verið vegna samgönguáætlunar og aðrar tengdar skýrslur. Einnig eru tenglar á vefsíður stofnana sem heyra undir samgönguráðuneytið og á samgönguáætlanir nokkurra annarra þjóða.
- Erindisbréf starfshópa

Myndasafn

Fréttir

11.12.2009 : Samgönguáætlun lögð fram fljótlega eftir áramót

Fyrirhugað er að leggja fram á Alþingi fljótlega eftir áramót tillögu til þingsályktunar um næstu fjögurra ára samgönguáætlun. Lokið verður við áætlunina þegar fjárlög næsta árs hafa verið samþykkt.

Lesa meira

 
Frá Landeyjahöfn

13.10.2009 : Ráðherra leggur línur um stefnuna

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sagði í ávarpi á umhverfisþingi síðastliðinn föstudag að brýnt væri að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og nefndi ýmsar aðgerðir sem grípa mætti til í þeim efnum á sviði samgöngumála. Lesa meira
 
Sprengisandur - vegvísar

13.10.2009 : Sjö starfshópar til ráðgjafar

Sjö starfshópar hafa verið skipaðir til að vera samgönguráði til ráðuneytis um einstaka málaflokka við undirbúning samgönguáætlunar. Lesa meira
 

Eldri fréttir...




Útlit síðu:


Stoðval


Önnur vefsvæði